Information
SKRÁNING LÝKUR KL. 14:00 SUNNUDAGINN 30.MAÍ
Leiðbeining til þess að skrá sig í mótið. https://help.challengermode.com/en/articles/596194-how-to-join-a-tournament ATH! Ef þú hefur ekki bætt við "Rocket League Game Account" þá er krafist þess að þú skráir þig með réttu notendanafni á þeim platform sem þú spilar á (Steam, Epic, Playstation, Switch eða Xbox).
Mótsreglur
Með skráningu í mótið staðfestir þátttakandi að hann hafi lesið reglurnar hér og samþykkt með öllu.
Mikilvægt er að allir fari eftir reglum mótsins til þess að tryggja góða framgöngu og jákvæða upplifun á mótinu. Keppendur verða að fylgja reglum sem og ákvörðunum stjórnenda mótsins og geta ákvarðanir þeirra verið frábrugðnar reglum mótsins ef talin er þörf á og meta stjórnendur það hverju sinni.
Athugið að best er að keppandi taki skjámynd eftir hvern leik, ef það skyldi koma upp vandamál milli liða um hvernig leikur endaði.
Uppsetning á leik
Allar viðureignir verða BO3. Byrjað er að spila 3v3 leik, það lið sem tapar fyrsta leik í seríu fær að velja hvort þeir spila 2v2 eða 1v1 í leik númer 2. Ef staðan er 1-1 eftir 2 leiki, þá verður spilað með þann liðsfjölda sem hefur ekki verið spilaður fram að þessu. Ekki er leyfilegt að tefla fram sama leikmann í 1v1 og í 2v2 per sérhverri viðureign (m.ö.o. leikmaður má spila 1v1 í einni viðureign og spila í 2v2 í annarri viðureign. Leikmaður má ekki spila í 1v1 og í 2v2 í sömu viðureiginni). Ekki verður hægt að skrá Sub í þessari keppni út af formatti.
Keppt verður í riðlakeppni. Efstu liðin úr riðlunum munu svo mætast í einfaldri útsláttarkeppni. Fjöldi riðla, og fjöldið liða per riðil verður ákvarðað eftir að skráningu hefur verið lokið.
Allir leikir eiga að vera spilaðir á Evrópskum leikjaþjóni.
Leikja snið: 3v3 x 2v2 x 1v1 Soccar
Völlur: Mannfield Night (Það má spila á öðrum völlum ef báðir þátttakendur samþykkja)
Sjálfgefnar stillingar (Default)
Samskipti og hjálp
Allar aðstoðarbeiðnir sem tengjast mótum eða öðru tengdu RLÍS fara í gegnum stjórnina. Aðal samskiptamiðilinn okkar er Discord (https://discord.gg/tGBY9kn) en einnig er hægt að hafa samband við okkur á Facebook (https://www.facebook.com/RocketLeagueIceland).
Hosted by
Timeline
Ready window opens
Registration closes
Ready window closes
Start
Results
Game settings
